Viljanum hefur borist tilkynning frá þingflokksformönnum stjórnarandstöðu vegna kröfu um að þing verði kallað saman.
Hún hljóðar svo:
„Með vísan í 2.mgr. 23. greinar stjórnarskrárinnar hafa þingflokksformenn þingflokka stjórnarandstöðu á Alþingi óskað eftir því við forsætisráðherra að hann geri tillögu til forseta Íslands þess efnis að þing verði kallað saman til að ræða þrjú mál.
Í fyrsta lagi þær upplýsingar sem nú hafa birst og varða sölumeðferð á 22,5% hluta í Ísandsbanka og vankanta á þeirri framkvæmd. Framkvæmdin kallaði fram sektargreiðslu Íslandsbanka upp á um 1,2 milljarða og enn á Seðlabankinn eftir að skila úttekt sinni á öðrum söluaðilum útboðsins. Þessu til viðbótar hefur Ríkisendurskoðandi tilkynnt framhaldsúttekt vegna söluferlisins.
Í öðru lagi aðdraganda þeirrar ákvörðunar matvælaráðherra að stöðva veiðar á langreyðum við Ísland sumarið 2023 og möguleg afleidd áhrif hennar.
Í þriðja lagi er óskað eftir því við forsætisráðherra að hann geri tillögu til forseta Íslands þess efnis að þing verði kallað saman til að ræða þær upplýsingar sem nú hafa birst í greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda og varða málefni Lindarhvols og meðferð stöðugleikaeigna sem ríkissjóður fékk afhentar í kjölfar uppgjörs við slitabú föllnu bankanna.
Rétt er að minna á að fari forsætisráðherra ekki fram á að þing verði kallað saman tryggir stjórnarskráin að meirihluti þingmanna geti farið fram á slíkt.“