Þorgerður Katrín: „Við þurfum ríkisstjórn sem virkar“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar. / Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

„Þingið virkaði,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, á Alþingi í dag um álit Umboðsmanns Alþingis og afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármála- og efnahagsráðherra.

„Stjórnarandstaðan virkaði og náði að knýja í gegn rannsóknir og skoðun á bankasölunni. Stjórnarflokkarnir vildu á kunnuglegan hátt sópa þessu undir teppið, eins og við þekkjum með ýmsar skýrslur, en núna liggur þetta fyrir og ummæli og viðbrögð þingmanna stjórnarflokkanna eru ekkert endilega í góðu ljósi í dag. En af þessu verðum við að læra, allt þingið og ekki síst ríkisstjórnarmeirihlutinn. Við sjáum að við afdráttarlausri niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, sem bendir einmitt á að farið var á svig við hæfisreglur stjórnsýslulaga, bregst fjármálaráðherra. Það er skiljanleg ákvörðun, rétt ákvörðun, skynsöm ákvörðun og hún er virðingarverð,“ sagði hún.

Þorgerður Katrín sagði á þingi í gær, að mikilvægt sé fyrir ríkissjóð að halda áfram sölunni á Íslandsbanka. Fjármál ríkisins geri ráð fyrir þessu til að reyna að lækka skuldir ríkissjóðs og vaxtagjöldin til að byggja upp innviði.

„En ég benti líka á að málið væri í ákveðinni sjálfheldu vegna þess vantrausts sem ríkir, aðallega í garð Sjálfstæðisflokksins, við sölu ríkiseigna. Sjálfstæðisflokkurinn ræður ekki við sölu ríkiseigna en við verðum samt að halda áfram sölunni á Íslandsbanka að mínu mati, m.a. til að rétta af fjármál ríkisins. Þess vegna lagði ég til í gær að málið og forræði þess yrði fært yfir til forsætisráðherra eða viðskiptaráðherra. En það sem við þurfum allra helst á að halda er að hætta að setja svona mikla orku í innanbúðarátökin við ríkisstjórnarborðið. Við verðum að átta okkur á því að erfiðar kjaraviðræður eru fram undan. Við þurfum ríkisstjórn sem virkar og er starfhæf, sem einbeitir sér að alvarlegri stöðu í efnahagsmálum og fer raunverulega að taka utan um heimilin í landinu,“ sagði hún ennfremur.