„Alþingi og ríkisstjórn eru svona slökkvilið í þeim vandræðum sem Grindvíkingar standa frammi fyrir núna. Það er mjög mikilvægt að við mætum á staðinn og bregðumst hratt og örugglega við. Heimili eru ónýt og þau sem standa heil eru ónotuð vegna þeirra aðstæðna sem þarna eru og fólkið þarf að finna sér annan viðverustað og finna öryggi á nýjum stað. Í því ljósi, virðulegur forseti, finnst mér það tilboð sem bankarnir gerðu Grindvíkingum um að stöðva afborganir en halda áfram að rukka vexti og verðbætur á fasteignalánum nánast hjákátlega broslegt í þeirri stöðu sem núna er uppi,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á þingi í dag.
„Bankarnir þurfa ekki undir þessum kringumstæðum að hagnast á Grindvíkingum. Vaxtaokrið í þessu landi er nóg og verðbæturnar sem ofan á það bætast. Og svo ef fólkið þarf að leigja sér húsnæði á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar til viðbótar því sem fyrir er þá nær enginn endum saman undir þeim kringumstæðum. Fólkið getur ekki borgað tvöfalt af húsnæði,“ bætti hann við.
Ásmundur varaði í byrjun vikunnar við því á þingi að bregðast yrði við vanda Grindvíkinga svo þær gætu losnað undan afborgunum af fasteignalánum, vöxtum og verðtryggingu. Þeim yrðu jafnframt tryggð laun og fyrirtækjunum gert kleift að greiða laun til starfsmanna sinna og gert kleift að hefja rekstur eins fljótt og hægt er um leið og íbúar fengju svigrúm til að koma sér fyrir á nýjum stað.
„Við verðum að gera það á þann hátt að þeim líði eins bærilega með það og hægt er. Í því ljósi er það tilboð sem nú liggur fyrir frá bönkunum og lánastofnunum algerlega óviðunandi. Það er nánast móðgun við fólk að bjóða þetta,“ sagði Ásmundur ennfremur.