Í samstarfi heilbrigðisráðuneytisins og Lyfju hefur verið undirbúið tilraunaverkefni um bólusetningar í apótekum sem lyfjafræðingar munu annast. Markmiðið er að bæta þjónustu við notendur, auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu, létta álagi af heilbrigðisstofnunum og efla hlutverk lyfjafræðinga innan heilbrigðiskerfisins. Hugmyndin er að til framtíðar fari mestur hluti bólusetninga fyrir almenning fram í apótekum.
Í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að samningur um verkefnið sé til hálfs árs og snúi að bólusetningum við Covid. Gert er ráð fyrir að bólusett verði í a.m.k. tveimur apótekum Lyfju og að bólusetningar verði allt að 5.000 á samningstímanum. Gert er ráð fyrir að tilraunaverkefnið hefjist næsta haust um það leyti sem hefðbundnar inflúensubólusetningar hefjast.
Heilbrigðisráðuneytið efndi fyrir nokkru til námskeiða þar sem lyfjafræðingar og fleiri heilbrigðisstéttir fengu kennslu í því að bólusetja. Námskeiðin voru vel sótt og eiga eftir að nýtast vel þeim lyfjafræðingum sem munu vinna við tilraunaverkefnið þegar það hefst í haust.