Brugðist við erfiðri stöðu borgarinnar: Perlan í söluferli og miðlægt eftirlit með ráðningum


Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að heimila fjármála- og áhættustýringarsviði, eignaskrifstofu, að hefja söluferli á eign Reykjavíkurborgar Perlunni auk tveggja vatnstanka í Öskjuhlíð við Varmahlíð 1.

Hitaveita Reykjavíkur byggði Perluna og var hún opnuð árið 1991.Reykjavíkurborg keypti Perluna árið 2013 og síðar tvo vatnstanka af Orkuveitu Reykjavíkur. Á þeim tíma sem kaupin fóru fram stóð rekstur hússins ekki undir sér og tekjur rétt nægjanlegar fyrir fasteignagjöldum og lóðarleigu.

„Á þeim tíu árum sem liðin eru frá kaupum borgarinnar á Perlunni hefur orðið algjör viðsnúningur á rekstrinum og standa tekjur vel undir kostnaði. Húsnæðið var auglýst til leigu og er núverandi leigutaki Perla norðursins ehf. sem hefur þróað hana sem áhugaverðan áfangastað í Reykjavík. Perlan hefur síðustu ár tekið miklum breytingum og hýsir núna sýningar auk veitingastaða. Perlan er einn af aðaláfangastöðum ferðamanna í borginni, og frá útsýnispallinum er magnað útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og fjallahringinn. Í Perlunni er fjöldi sýninga þar á meðal íshellir, stjörnuver og gagnvirkar sýningar um íslenska náttúru og menningu. Þessar eignir bjóða upp á aukin tækifæri og möguleika til áframhaldandi þróunar og ekki sjálfgefið að Reykjavíkurborg sé besti aðilinn til að þróa þessar eignir áfram,“ segir þar ennfremur.

Stærð hússins og tanka er um 5800 fermetrar og er fasteignamat 3.942.440.000 krónur.

Reynt að ráða ekki í ný störf

Borgarráð samþykkti einnig að skipa þriggja manna nefnd til að rýna ráðningar á vegum sviða og starfsstaða Reykjavíkurborgar og fylgja eftir tímabundnum ráðningarreglum. Nefndin fundi vikulega og afgreiði umsóknir um ráðningar frá sviðum og miðlægum skrifstofum.

Nefndin gefi út leiðbeiningar sem stuðli að gagnsærri og skilvirkri framkvæmd. Markmiðið með skipan ráðninganefndarinnar er að auka enn frekar yfirsýn Reykjavíkurborgar yfir ráðningar og aðhald með ráðningum í störf þar sem við á, í því skyni að draga úr launakostnaði. Ekki verði ráðið í laus störf þar sem því verður við komið. Í því skyni verði allar ákvarðanir um ráðningar í laus störf frá og með 1. október 2023 bornar undir ráðninganefnd.

Þetta fyrirkomulag gildir til 31. desember 2024.