Hversu oft er hægt að lýsa yfir stríði? Þeirri spurningu veltir Hörður Ægisson, viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins, upp í leiðara blaðsins í dag, þar sem hann gagnrýnir forystu verkalýðshreyfingarinnar harðlega fyrir yfirlýsingar sínar undanfarna daga.
„Hjá forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar þarf tilefnið oft ekki að vera mikið. Þau ummæli fjármálaráðherra að áform um lækkun tekjuskatts yrðu endurskoðuð ef samið verður um óábyrgar launahækkanir jafngiltu, að mati formanns VR, stríðsyfirlýsingu. Þetta er orðið kunnuglegt stef. Ólíkt þeim sem nú ráða innan stéttarfélaganna – og skeyta lítt um hagfræðileg lögmál – þá ber stjórnvöldum skylda til að gæta að stöðugleika. Verði niðurstaða kjarasamninga í líkingu við þær launakröfur sem verkalýðsfélögin hafa sett fram munu afleiðingarnar birtast í frekari gengisveikingu og enn hærri verðbólgu. Við slíkar aðstæður er það ekki valkostur fyrir ríkisstjórnina og Seðlabankann að sitja aðgerðalaus hjá,“ skrifar Hörður.
Hann segir að þetta viti flestir og þess vegna komi ekki á óvart að sjá að samstaðan innan verkalýðshreyfingarinnar sé nú að bresta. „enda sjá orðið æ fleiri að þeir eiga ekki samleið með þeim sem tala hvað herskáast.“
Hörður veltir því upp í leiðaranum hvort aðalmarkmið nýrrar forystu verkalýðshreyfingarinnar sé annað en að ná kjarasamningum?
„Í huga þeirra virðast það vera átökin sem slík, byggt á óljósum hugmyndum um marxískt stéttastríð, sem eru markmiðið fremur en að ná kjarasamningum. Meginþorri almennings veit vel að þessi málstaður gengur í berhögg við hagsmuni launafólks. Hann hefur nú þegar orðið vitni að því á síðustu mánuðum þar sem gengi krónunnar hefur gefið verulega eftir og verðbólga aukist. Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði, hefur réttilega bent á að „róttækni í orðum“ geti „hæglega orðið til þess að krónan veikist enn meira í vetur, sem bitnar mest á umbjóðendum verkalýðsfélaganna, sem er almenningur í landinu“. Forystufólk Eflingar og VR getur sagst vera ósammála því að málflutningur þess hafi átt þátt í veikingu krónunnar, án þess að færa fyrir því nein efnisleg rök, en það breytir engu um staðreyndir málsins – heldur opinberar aðeins innantómt lýðskrumið sem þau standa fyrir,“ segir hann.
Staðan er brothætt
Viðskiptaritstjórinn bendir á að eftir fordæmalausa uppsveiflu séu nú að verða skörp skil og tímabil aðlögunar sé hafið.
„Fyrirtækin halda að sér höndum og væntingar stjórnenda hafa sjaldnast mælst lægri. Í fyrsta sinn í nærri tíu ár gera stjórnendur nú ráð fyrir að þeir þurfi að fækka starfsfólki verulega á næstu árum. Þótt engin ástæða sé til að óttast djúpa niðursveiflu þá er staðan brothætt og vanhugsaðar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði, geta gert hana verri en efni standa til. Aðilar vinnumarkaðarins, bæði fulltrúar vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar, bera þess vegna ríka ábyrgð.
Því miður rísa sumir þeirra ekki undir henni og fara fram með ósamrýmanlegar kröfur um tugprósenta launahækkanir á sama tíma og þess er krafist að vextir lækki og verðtrygging verði afnumin. Það er ekki heil brú í þessum málflutningi.“
sama fólk bauð sig fram til Alþingis – og með sömu hugmyndir að leiðarljósi – undir merkjum stjórnmálaaflsins Dögunar og hlaut þriggja prósenta fylgi.
Hann bendir að lokum á að verkefnið nú sé að eyðileggja ekki árangur liðinna ára.
„Það er hins vegar ekki, eins og má skilja af fulltrúum helstu verkalýðsfélaganna, að ráðast í pólitískar kerfisbreytingar og umbylta íslensku samfélagi. Til þess voru þeir ekki kjörnir, né hafa til þess nokkurt umboð, ekki fremur en þegar sama fólk bauð sig fram til Alþingis – og með sömu hugmyndir að leiðarljósi – undir merkjum stjórnmálaaflsins Dögunar og hlaut þriggja prósenta fylgi. Staðreyndin er sú, sem forysta hinnar nýju verkalýðshreyfingar mætti stundum hafa hugfast, að eftirspurn eftir hugmyndum hennar er minni en hún heldur. Vonandi finnur hún frið í hjarta yfir jólin,“ segir Hörður Ægisson.