Ísland með frjálslyndustu ríkjum heims í tollamálum

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Frá upphafi árs 2017 hafa tollar á innfluttar iðnaðarvörur, numið 0%. Samkvæmt Alþjóðaviðskiptastofnuninni er Ísland eitt aðeins sex aðildarríkja sem hafa nær alfarið afnumið tolla á iðnaðarvörur. 

Í ritinu „World Tariff Profiles 2018“ sem gefið hefur verið út af Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) er að finna yfirlit yfir meðaltolla í aðildarríkjunum árið 2017.

Yfirlitið byggist á tölfræðigreiningu stofnunarinnar sem unnin er upp úr gögnum sem flokkuð hafa verið í samræmi við alþjóðlegu tollskrána.Við greininguna hefur m.a. verið tekið tillit til bæði verð- og magntolla, að því er kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Þegar að iðnaðarvörum kemur er ljóst að Ísland er afar frjálslynt ríki þar sem einfaldur meðaltalsbestukjaratollur (MEB-tollur – ensku Simple average most favoured nations applied tariff) nemur einungis 0,1%.

Einungis Hong Kong, Macao og Singapúr standa Íslandi framar með 0,0% MEB-toll. Önnur ríki sem framarlega standa eru Noregur, Georgía og Máritía.