Í ljósi atburða síðustu daga og þess að fyrirséð er að boðað verði til hluthafafundar hjá Íslandsbanka og mögulegs stjórnarkjörs, telur stjórn Kviku ekki forsendur til þess að halda samningaviðræðum áfram, segir í tilkynningu frá Kviku til Kauphallarinnar nú síðdegis.
Þar er vísað til þess að undanfarna mánuði hafi staðið yfir viðræður um mögulegan samruna Kviku banka og Íslandsbanka og hafi félögin ásamt erlendum og innlendum ráðgjöfum sínum unnið að því að meta mögulega samlegð af samruna og stöðu sameinaðs félags á markaði.
Í kjölfar þeirrar vinnu sé það mat stjórnar Kviku að verulegur ávinningur geti falist í samruna. Viðræðurnar hafi verið góðar en hins vegar ekki enn leitt til sameiginlegrar niðurstöðu um skiptahlutföll. Ljóst sé að ávinningur af samruna félaganna gæti orðið verulegur og lýsir stjórn Kviku yfir vilja sínum til þess að hefja viðræður að nýju ef forsendur skapast.