Á fundi sínum í morgun samþykkti stjórn Samtaka atvinnulífsins áskorun til aðildarfélaga sinna, annarra fyrirtækja landsins, ríkis og sveitarfélaga um að styðja við sameiginleg samningsmarkmið nýrra kjarasamninga með því að halda aftur af verðhækkunum og launaskriði, eins og þeim frekast er unnt.
Samningsmarkmiðin eru langtímakjarasamningar sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Mikilvægasta verkefni komandi kjaraviðræðna sé að greiða leið kjarasamninga sem vinni gegn þeirri miklu verðbólgu og háa vaxtastigi sem komið hafi hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum.
Áskorun stjórnar Samtaka atvinnulífsins
„Samtök atvinnulífsins og breiðfylking stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum hafa tekið höndum saman með það að markmiði að gera langtímakjarasamninga sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu.
Samningsaðilar eru sammála um að mikilvægasta verkefnið í komandi kjaraviðræðum sé að greiða leið kjarasamninga sem vinna gegn þeirri miklu verðbólgu og háu vaxtastigi sem komið hafa hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum.
Til að það markmið náist verða allir aðilar vinnumarkaðarins að leggjast á eitt og getur enginn skorast undan ábyrgð.
Stjórn Samtaka atvinnulífsins skorar á aðildarfélög sín, önnur fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að styðja við fyrrgreind markmið kjarasamninga, eins og þeim frekast er unnt, með því að halda aftur af verðhækkunum og launaskriði.
Sameiginleg samningsmarkmið nýrra kjarasamninga eru í samræmi við áherslur Samtaka atvinnulífsins og ályktanir opinna vinnufunda samtakanna, sem voru haldnir um allt land á liðnum haustmánuðum.“