Átakshópur um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði hefur skilað Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, tillögum sínum.
Að mati hópsins liggur óuppfyllt íbúðaþörf nú á bilinu fimm til átta þúsund íbúðir á landinu öllu. Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis er hins vegar fyrirhuguð á næstu árum og áætlað er að um tíu þúsund íbúðir verði byggðar á árum 2019–2021. Gangi þær áætlanir eftir mun óuppfyllt íbúðaþörf minnka til muna en hún verður engu að síður um tvö þúsund íbúðir í upphafi árs 2022.
Þrátt fyrir mikla uppbyggingu eru vísbendingar um að það framboð sem nú er að myndast muni síður henta tekju- og eignalágum. Stór hluti lítilla íbúða sem eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu er í hverfum þar sem fermetraverð er hvað hæst. Í þeim sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu þar sem fermetraverð er lægra virðist mest vera byggt af stærri íbúðum sem geta þar með síður talist hagkvæmar. Því er nauðsynlegt að ráðast í aðgerðir til að auka framboð hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði til leigu og eignar, að því er fram kemur í upplýsingum frá forsætisráðuneytinu.
Hópurinn leggur fram tillögur í eftirfarandi sjö flokkum. Tillögurnar eru 40 talsins og er að finna í skýrslu hópsins, sem finna má í tengli hér að neðan.
- Almennar íbúðir
Stækkun kerfisins með stofnframlögum og hærri tekjumörkum - Húsnæðisfélög
Stuðningur við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög - Leiguvernd
Skýrari reglur á leigumarkaði án þess að það bitni á framboði - Skipulags- og byggingarmál
Endurskoðun regluverks til einföldunar og rafvæðing stjórnsýslu - Samgönguinnviðir
Hraðari uppbygging samgönguinnviða og almenningsamgangna - Ríkislóðir
Ráðstöfun ríkislóða fyrir íbúðir, þar á meðal fyrir leigumarkað - Upplýsingamiðlun
Samræmd söfnun og miðlun upplýsinga um húsnæðismál
Átakshópurinn var skipaður af Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og hóf störf 5. desember sl. Hópinn skipuðu fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, fulltrúar sveitarfélaga og fulltrúar forsætis-, fjármála- og efnahags- og félagsmálaráðuneytis. Formenn hópsins voru Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Íbúðalánasjóðs, og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Sex undirhópar störfuðu með hópnum á tímabilinu og fjölluðu um útfærslu afmarkaðra verkefna. Haft var samráð við mikinn fjölda stofnana, sveitarfélaga og hagsmunaaðila og tugir sérfræðinga komu með einum eða öðrum hætti að vinnu hópsins.