Bjarni með breiðsíðu um tjaldbúðirnar: Hælisleitendamál komin algjörlega úr böndunum

Óhætt er að segja að Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, setji fram breiðsíðu um eldfimt umræðuefni á Facebook í kvöld, er hann tjáir sig um hælisleitendamál, tjaldbúðir mótmælenda við Austurvöll og þrýsting á fjölskyldusameiningar dvalarleyfishafa frá Palestínu.

Eins og Viljinn skýrði frá í fyrradag er hart tekist á bak við tjöldin í ríkisstjórninni um hælisleitendamál, ekki síst málefni Palestínufólks. Í samráðsgátt stjórnvalda voru í dag birt drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um flóttamannabúðir, eða það sem á formlegu máli er kallað „lokað búsetuúrræði“, en ráðherrar Vinstri grænna hafa lýst miklum efasemdum um þær ráðagerðir.

Ekkert hefur heyrst frá Bjarna undanfarna daga um stöðu Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra eftir álit Umboðsmanns Alþingis og boðaða vantrausttillögu stjórnarandstöðunnar á hana í þinginu. En í kvöld rýfur hann þögnina svo um munar og algjörlega er ljóst, að Vinstri grænir munu ekki ærast af fögnuði.

Gefum Bjarna orðið:

„Það er hörmung að sjá tjaldbúðir við Austurvöll sem nú hafa staðið þar síðan 27. desember síðstliðinn. Það er óboðlegt með öllu að Reykjavíkurborg hafi gefið leyfi fyrir tjaldbúðunum á þessum helga stað milli styttunnar af Jóni Sigurðssyni og Alþingis. Í gær beit Reykjavíkurborg höfuðið af skömminni með því að framlengja leyfið. Það má gera ráð fyrir að það hafi verið hugsað í þeim tilgangi að tryggja að tjöldin stæðu þarna að lágmarki fram yfir samkomudag þingsins í upphafi næstu viku.

Þessar dapurlegu tjaldbúðir hafa ekkert með hefðbundin mótmæli að gera sem löng hefð er fyrir að geti farið fram á Austurvelli. Í þessu tilviki hefur Reykjavíkurborg leyft því að gerast að hópur mótmælenda kemur sér í heilan mánuð fyrir með tjöldum og búnaði. Ég gef ekkert fyrir lítillega breytt skilyrði sem fylgja framlengingu leyfisins frá því í gær. Hópurinn flaggar þarna fjölda þjóðfána Palestínu og festir á ljósastaura og tjöld.

Engum ætti að líðast að flagga nokkrum þjóðfána fyrir framan Alþingi Íslands svo vikum skipti til að mótmæla íslenskum stjórnvöldum. Hvað þá að festa slíka fána á ljósastaura og annað lauslegt og láta þá hanga þar svo vikum skipti. Óskiljanlegt er að þetta hafi fengið að viðgangast og hvað þá að Reykjavíkurborg leggi sérstaka blessun yfir flöggun fánans við famlengingu leyfisins.

Þeir sem mótmæla eru í landi sem fær margfalt fleiri umsóknir hælisleitenda en nágrannaríkin. Hærra hlutfall umsókna er jafnframt tekið til efnislegrar meðferðar hér með jákvæðri niðurstöðu. Ekkert Norðurlandanna hefur tekið við fleiri Palestínumönnum en Ísland undanfarið og ekkert annað land hefur tekið til flýtimeðferðar beiðnir um fjölskyldusameiningar eftir 7. október. Þessi hópur krefst þess nú að íslensk stjórnvöld gangi einnig lengra en allar nágrannaþjóðir til þess að tryggja að það fólk komist frá Gaza.

Það sem næst þarf að gerast í þessum málaflokki er að herða reglur um hælisleitendamál og samræma því sem gerist hjá nágrannaþjóðum. Auka þarf eftirlit á landamærum. Núverandi fyrirkomulag er algerlega komið úr böndunum, bæði varðandi kostnað og fjölda umsókna. Innviðir okkar komnir að þolmörkum og á því þingi sem tekur aftur til starfa á mánudaginn fram á sumar skiptir öllu að á þessum málum verði tekið af festu og öryggi. Alþingi hefur ítrekað brugðist og hafnað tillögum dómsmálaráðherra sem m.a. hafa átt að taka á þessari stöðu, þótt nokkur jákvæð skref hafi verið tekin. Samhliða þessu þarf að styrkja lögregluna m.a. með auknum heimildum í báráttunni gegn brotastarfsemi, þ.m.t. alþjóðlegri brotastarfsemi.“