Brynjar Níelsson: Þegar fylgi Pírata dalar saka þeir aðra um siðleysi

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

„Þegar fylgi fer niður í skoðanakönnunum hjá Pírötum er strax farið í herferð með ásökunum um óheiðarleika, spillingu og siðleysi annarra.“ Þetta er haft eftir Brynjari Níelssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á facebook síðu hans seinnipartinn í dag.

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í borgarstjórn, sakaði Eyþór Arnalds, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lygar og óheiðarleika í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, vegna meintra sýndarviðskipta hans við Samherja, vegna kaupa hans á hlut í Morgunblaðinu.

Ummælin samræmist illa nýsamþykktum siðareglum

Eyþóri fannst gróflega að sér vegið og andmælti ásökununum í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins. Hann vísaði í nýsamþykktar siðareglur kjörinna fulltrúa Reykjavíkurborgar og hyggst taka málið þar upp í forsætisnefnd.

„Déjà vu! Ég hef rökstuddan grun um að litlir karlar í Sjálfstæðisflokknum eigi bágt með þegar konur í Pírötum benda á spillinguna í bakgarðinum hjá þeim,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaþingflokksformaður Pírata um málið á facebook í framhaldinu.

Brynjar segir þetta vera alþekkta aðferð popúlískra flokka. Það hafi því ekki komið á óvart þegar breska stórblaðið Guardian flokkaði íslenska pírataflokkinn sem popúlistaflokk.

„Þar er auðvitað fremstur í flokki sá þingmaður Pírata sem hefur fengið áfellisdóm vegna brots á siðareglum Alþingis,“ segir Brynjar og vísar í álit siðanefndar Alþingis, og úrskurð forsætisnefndar Alþingis, um að Þórhildur Sunna hafi brotið siðareglur Alþingis, eins og Viljinn hefur þegar greint frá.

Furðar sig á stöðu Þórhildar Sunnu eftir úrskurðinn

„Einkennilegt er að Evrópuráðsþingið, sem er sérstaklega annt um siðlega háttsemi og hefur þvingað þjóðþingin til að setja siðareglur, skuli ekki sjá neitt athugavert við að þessi sami þingmaður skuli gegna formennsku í einni af mikilvægustu nefndum þings Evrópuráðsins,“ heldur Brynjar áfram, en Þórhildur Sunna er varaformaður Íslandsdeildar Evrópuþingsráðsins, skv. vef Alþingis.

„Ekki svo að það komi mér á óvart enda þarna rekin grímulaus pólitík þar sem þekking á mannréttindum og siðferðislegum málefnum er mjög takmörkuð, þótt engin skortur sé á sjálfskipuðum sérfræðingum í þeim efnum. En við höldum sjálfsagt áfram að trúa því að allt sem þaðan kemur sé heilagur sannleikur.“