Ekkert gert með mótmæli foreldra: Skólahald aflagt í Korpuskóla

Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar.

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að frá og með hausti 2020 verði þrír grunnskólar starfræktir í norðanverðum Grafarvogi. Borgaskóli og Engjaskóli verði fyrir nemendur í 1.-7. bekk og Víkurskóli verði sameinaður unglingaskóli fyrir nemendur í 8.-10 bekk. Gert er ráð fyrir að hver skóli rúmi á þriðja hundrað nemendur.

Tillagan felur í sér að skólahald verður aflagt í Korpuskóla þar til börnum í Staðahverfi á aldrinum 6-12 ára hefur fjölgað í 150 og verður þá ákvörðun um skólahald í hverfinu endurskoðuð í samstarfi við foreldra og íbúa. 59 nemendur eru nú í Korpuskóla og hefur fækkað úr 140 nemendum árið 2012 en skólinn er byggður fyrir 170 nemendur, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.

Þetta þýðir að ekkert hefur verið gert með mótmæli foreldra barna í hverfinu sem mótmælt hafa fyrirhuguðum breytingum harðlega, líkt og Viljinn hefur skýrt frá.

Tillagan felur í sér að tryggðar verði samgöngubætur til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og til að tengja betur öll hverfi í norðanverðum Grafarvogi. Göngu- og hjólaleiðir verði bættar til að gera skóla-, frístunda- og íþróttastarf aðgengilegra fyrir íbúa í öllum norðanverðum Grafarvogi.  Undirgöng eða ámóta örugg göngu- og hjólaleið verði sett við Strandveg/Víkurveg á milli Garðsstaða og Breiðavíkur. Sett verði upp gönguljós og þrenging götu við Mosaveg. Unnið verði að úrbótum á almenningssamgöngum í samstarfi við Strætó b.s., með áherslu á fjölgun biðstöðva og tíðari ferðir. 

Í tillögunni, sem samþykkt var í dag, kemur fram vilji meirihluta skóla- og frístundaráðs til að skólahúsnæðið í Korpu nýtist áfram í skóla- og frístundastarfi þannig að foreldrar hafi val um skóla- og frístundaúrræði fyrir börn sín. Í því sambandi verði m.a. leitað eftir áhuga sjálfstætt starfandi skóla. 

Á fundi skóla- og frístundaráðs var lagt fram álit borgarlögmanns um að ekki sé nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi áður eða samhliða því að skólahaldi verði hætt í Korpuskála. Með hliðsjón af fyrirhuguðum úrbótum á samgöngum milli hverfa er, að hans mati, ekki fyrir hendi skaðabótaábyrgð af hálfu borgaryfirvalda gagnvart íbúum Staðahverfis.