Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar áréttar að orkuauðlindin er ein af mikilvægustu forsendum velmegunar í landinu. Mikilvægi þess að allar ákvarðanir í orkumálum verði í höndum Íslendinga er því ótvírætt.
Þetta kemur fram í ályktun stjórnarinnar, sem Viljanum hefur borist. Það var Ingi Björn Árnason bóndi sem bar hana upp og var hún samþykkt samhljóða.
„Skal í því sambandi minnt á að stjórnarskrá Íslands leyfir ekki framsal ríkisvalds til erlendra stofnana. Aðstæður Íslands í orkumálum eru gjörólíkar þeim sem liggja til grundvallar orkulöggjöf ESB og því er óskynsamlegt að innleiða það regluverk hér.
Ísland hefur í dag enga tengingu við orkumarkað ESB og telur stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar slíka tengingu ekki þjóna hagsmunum landsmanna.
Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar telur því rétt að Alþingi og ríkisstjórn skuli leita eftir undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans.“