WOW air ræðir við Icelandair um aðkomu að rekstrinum

WOW air tilkynnti í dag um slit á viðræðum við bandaríska fjárfestingasjóðinn Indigo Partners um mögulega fjárfestingu í félaginu.

Í kjölfar tilkynningar frá WOW air um slit viðræðna við Indigo Partners, hefur stjórn Icelandair Group samþykkt að hefja viðræður við WOW air um aðkomu að rekstri félagsins. Ef af verður mun aðkoman byggja á sjónarmiði samkeppnisréttar um fyrirtæki á fallandi fæti. Viðræðurnar fara fram í samráði við stjórnvöld.

Stefnt er að því að niðurstöður viðræðna liggi fyrir mánudaginn 25. mars 2019.

Vegna tilkynningar Icelandair til Kauphallar Íslands um viðræður Icelandair og Wow air vill ríkisstjórnin taka fram:

„Stjórnvöld hafa síðasta árið fylgst með erfiðleikum í alþjóðlegum flugrekstri og samkeppnisstöðu íslenskra flugfélaga í því ljósi. Eigendur Wow air hafa um nokkurra mánaða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félagsins og hafa átt viðræður við fjárfesta, flugrekendur og aðra haghafa. Hingað til hafa þær viðræður ekki skilað þeim árangri sem eigandi félagsins stefndi að.

Ríkisstjórnin mun áfram fylgjast grannt með framvindunni og bindur vonir við að viðræður félaganna muni skila farsælli niðurstöðu.“