Fréttaskýring á sunnudegi:

Gríðarleg spenna er nú innan Sjálfstæðisflokks vegna vaxandi þrýstings um að festa í lög innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Iðnaðarráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp þessa efnis eftir áramót, en fjölmargir þingmenn eru andsnúnir því og grasrótin er almennt á móti. Forysta flokksins óttast að andstaða við innleiðinguna myndi þýða að Ísland yrði að segja sig frá Evrópska efnahagssvæðinu með tilheyrandi afleiðingum.

Til stend­ur að leggja fram þing­mál í fe­brú­ar á næsta ári um samþykkt svo­nefnds þriðja orkupakka Evr­ópu­sam­bands­ins vegna aðild­ar Íslands að EES-samn­ingn­um. Þetta kem­ur fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Sjá einnig: Jón Baldvin varar við orkupakka III: Myndi hækka raforkuverð gríðarlega hér á landi

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferðamála-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, hyggst leggja fram frum­varp um breyt­ing­ar á raf­orku­lög­um nr. 65/ 2003 og lög­um nr. 87/ 2003 um Orku­stofn­un í fe­brú­ar. „Frum­varpið fel­ur í sér inn­leiðingu á þriðju raf­orku­til­skip­un ESB að því er varðar sjálf­stæði raf­orku­eft­ir­lits Orku­stofn­un­ar.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra.

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ut­an­rík­is­ráðherra hyggst í sama mánuði leggja fram þings­álykt­un­ar­til­lögu um ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­inn­ar um breyt­ing­ar á EES-samn­ingn­um vegna inn­leiðing­ar á þriðja orkupakk­an­um. Meðal ann­ars um að koma á fót sam­starfs­stofn­un eft­ir­litsaðila á orku­markaði sem nefnd hef­ur verið ACER.

Mjög skiptar skoðanir

Skoðanir um þetta mál eru mjög skiptar innan Sjálfstæðisflokksins og litast afstaðan ekki einungis af því hvort menn hafa verið hlynntir aðild að ESB eða ekki. Þannig skilaði lögfræðingurinn Birgir Tjörvi Pétursson greinargerð til iðnaðarráðherra þar sem segir að innleiðing á þriðja orkupakka Evrópusambandsins í lög hér á landi fæli ekki í sér slík frávik frá þverpólitískri stefnumörkun og réttarþróun á Íslandi að það kalli sérstaklega á endurskoðun samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Birgir Tjörvi er fv. framkvæmdastjóri Heimssýnar, félags andstæðinga aðildar að ESB sem leggst alfarið gegn innleiðingunni.

Þá hefur Björn Bjarnason fv. ráðherra varið hina fyrirhuguðu innleiðingu af fullum krafti og sagt hana eðlilegan þátt í EES-samstarfinu.

Davíð Oddsson segir að stuðningur forystu Sjálfstæðisflokksins við innleiðingu þriðja orkupakka ESB jafngildi stuðningnum við Icesave-samningana á sínum tíma.

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur hins vegar tekið eindregna afstöðu gegn innleiðingu orkupakkans og spurt hvort forysta Sjálfstæðisflokksins ætli virkilega að gera svipuð mistök og í Icesave-málinu, en það sé mál sem margir eigi mjög erfitt með að fyrirgefa flokknum.

Innleiðing orkupakkans hefur mjög verið rædd á stjórnmálafundum Sjálfstæðisflokksins undanfarnar vikur og hefur hávær andstaða flokksfólks þar verið áberandi.

Brynjar vill ekki innleiða

„Ég vil reyna að kom­ast hjá því í lengstu lög, ef það er hægt, að inn­leiða þenn­an orkupakka,“ sagði Brynj­ar Ní­els­son þingmaður Sjálfstæðisflokksins í þætt­in­um Þing­völl­um á K100 í morg­un. Björt Ólafsdóttir fv. umhverfisráðherra var umsjónarmaður þáttarins og ásamt Brynjari sat Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra fyrir svörum. Hann sagði Miðflokksmenn vera tilbúna að berjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins gegn innleiðingunni.

Í frásögn mbl.is af samræðunum segir að samstaða hafi verið með viðmæl­end­un­um tveim­ur varðandi áhrif EES-samn­ings­ins á Ísland.

Brynjar Níelsson alþingismaður.

„Þetta er vand­inn við þenn­an samn­ing. Það sem ger­ist alltaf er að það er alltaf gengið lengra og lengra. Framsalið á vald­inu verður alltaf meira og meira. Þá er spurn­ing­in: Eig­um við alltaf að teygja okk­ur lengra í þessa átt eða eig­um við að spyrna niður fæti og segja: „Þetta er orðið eitt­hvað of mikið“?,“ sagði Brynjar ennfremur.

Björt Ólafsdóttir lét þess getið í þættinum, að erfitt hefði verið að fá viðmæl­end­ur frá Sjálf­stæðis­flokki í þátt­inn, þrátt fyr­ir að ráðherr­ar úr röðum flokks­ins, Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ut­an­rík­is­ráðherra og Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferðamála-, ný­sköp­un­ar- og iðnaðarráðherra, færu fyr­ir mál­inu.