
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, fagnar því að þingmennirnir Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason hafi ákveðið að ganga til liðs við Miðflokkinn. Hann segir að þar sem flokkurinn sé nú orðinn stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn og valdahlutföll breytt á Alþingi, muni hann fara fram á að skipað verði upp á nýtt í nefndir þingsins.
Samkvæmt hefðum fær þá Miðflokkurinn fyrsta val þegar kemur að formennsku í nefndum, en Samfylkingin var áður með þá stöðu og valdi að gera Helgu Völu Helgadóttur að formanni stjórnskipunar- og allsherjarnefndar. Samkomulag var um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati tæki svo við formennsku af henni á síðari hluta kjörtímabilsins.
„Með því bætast tveir gríðaröflugir þingmenn við þingflokk okkar sem verður sá þriðji stærsti á Alþingi og stærsti flokkur stjórnarandstöðunnar,“ segir Sigmundur Davíð í bréfi til flokksmanna í dag.
Hinir nýju þingmenn Miðflokksins hafa verið pólitískir bandamenn okkar á Alþingi frá því strax eftir kosningar
„Þeir Karl Gauti og Ólafur hafa gert grein fyrir því að þeir gangi til liðs við flokkinn á grundvelli þeirra málefna sem hann stendur fyrir og vegna þess með hvaða hætti við vinnum að stjórnmálum. Það er með áherslu á skynsemishyggju og lausnir auk festunnar sem þarf til að komast í gegnum hindranir og standa við loforð.
Hinir nýju þingmenn Miðflokksins hafa verið pólitískir bandamenn okkar á Alþingi frá því strax eftir kosningar og mikill samhljómur verið milli þeirra og þingmanna flokksins. Við höfum flutt mál saman og verið traustir samherjar í stjórnarandstöðu. Raunar höfum við Ólafur verið samtaka í baráttu fyrir stórum málum á borð við endurskipulagningu fjármálakerfisins í um áratug og ég náði strax mjög vel saman við Karl Gauta sem var sessunautur minn á fyrsta þingi þessa kjörtímabils og samherji í stórum prinsippmálum.
Við munum nú fara fram á að kosið verði aftur í nefndir Alþingis svo að nefndaskipan taki mið af breyttum hlutföllum í stjórnarandstöðu og á þinginu í heild auk þess að gera aðrar ráðstafanir sem af þessu leiða. Fyrst og fremst munum við þó hefja saman sókn og baráttu fyrir þeim mörgu stóru tækifærum sem hafa verið vanrækt í íslenskum stjórnmálum, betri stjórnmálum og betra samfélagi.
Ég treysti því að flokksmenn taki vel á móti Ólafi og Karli Gauta og sýni þeim og öðrum sem síðar kunna að ganga til liðs við okkur að Miðflokkurinn sé í senn einstaklega góður hópur samherja og vina og afl sem getur leitt mikilsverðar framfarir fyrir Íslendinga,“ segir formaðurinn ennfremur í bréfi sínu.