Fordæma vinnubrögð Seðlabankans: Fráleit tilraun til þöggunar

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélagsins.

„Blaðamannafélag Íslands fordæmir þau vinnubrögð sem Seðlabanki Íslands hefur viðhaft í kjölfar fyrirspurna blaðamanns Fréttablaðsins um launakjör og hlunnindi, sem bankinn hefur veitt starfsmönnum sínum. Öllum má vera ljóst að þessi mál varða almenning í landinu og því fráleitt hjá stjórnendum Seðlabankans að neita að veita þessar upplýsingar. Af fréttum að dæma virðist hér vera um að ræða sérstakt mál innan bankans sem ekki styðst við neinar þekktar reglur eða fordæmi og því enn mikilvægara að upplýsa málið. Seðlabankinn er opinber stofnun og getur ekki hundsað að veita almenningi í landinu upplýsingar um starfsemi sína, ákvarðanir stjórnenda bankans og meðferð opinbers fjár.“

Þetta segir í ályktun stjórnar Blaðamannafélags Íslands, sem send var út nú síðdegis. Tilefnið er málarekstur Seðlabankans gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, og tilraunir til að koma í veg fyrir fréttaflutning af námsstyrk fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá bankanum.

„Þá fordæmir Blaðamannafélag Íslands sérstaklega þá fráleitu tilraun sem stjórnendur Seðlabankans hafa viðhaft til að þagga niður málið með því að stefna umræddum blaðamanni Fréttablaðsins fyrir dóm með það fyrir augum að stöðva umfjöllun hans um Seðlabankann. Þessi vinnubrögð bankans bera keim af leyndarhyggju og kúgunartilburðum sem á ekki að viðgangast hjá opinberum stofnunum.

Að mati Blaðamannafélags Íslands er ólíðandi að blaðamenn þurfi að standa í langvinnum, dýrum og tímafrekum málarekstri til að fá upplýsingar frá opinberum aðilum sem þeir eiga rétt á að fá samkvæmt upplýsingalögum.

Ari Brynjólfsson, blaðamaður Fréttablaðsins.

Blaðamaður Fréttablaðsins hefur unnið að málinu af samviskusemi og einurð og hefur nú niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál sér til fulltingis. Nefndin úrskurðaði að bankinn ætti að veita upplýsingarnar en þrátt fyrir þá niðurstöðu kýs bankinn að höfða mál á hendur viðkomandi blaðamanni. Blaðamannafélag Íslands krefst þess að Seðlabankinn láti af þessum fyrirætlunum og afhendi gögnin strax.

Blaðamannafélag Íslands minnir á það mikilvæga hlutverk fjölmiðla að vera vettvangur fyrir þjóðina, æðsta vald lýðveldisins, til að nálgast upplýsingar vegna ákvarðana í mikilvægum málum. Því er brýnt að opinberir aðilar virði rétt blaðamanna til aðgangs að upplýsingum og beiti ekki öllum brögðum til að koma í veg fyrir slíkt,“ segir í yfirlýsingu sem Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélagsins, sendi fyrir hönd stjórnar í dag.