Frétt Viljans staðfest: Helgi kaupir 50% í Fréttablaðinu

Helgi Magnússon fjárfestir.

Félag á vegum Helga Magnússonar hefur keypt helming hlutafjár í Torgi ehf. sem á og rekur Fréttablaðið, frettabladid.ismarkadurinn.is, tímaritið Glamour og tengda starfsemi.

Frá þessu er greint á vef Fréttablaðsins. Þar kemur fram að það hafi verið stefna Torgs að breikka eigendahópinn um nokkurt skeið. Tilgangurinn sé ekki annar en gera styrkja grunnstoðir blaðsins og gera gott blað og fyrirtæki enn betra en það er í dag.

Helgi mun taka sæti í stjórn Torgs ehf. í framhaldinu en Ingibjörg Pálmadóttir verður formaður stjórnar félagsins. Helgi gerir ráð fyrir að fleiri komi að eignarhaldi á þessum helmingshlut í Torgi ehf. en ekkert hefur verið ákveðið um það ennþá.

Viljinn skýrði fyrst frá breytingum á eignarhaldi Fréttablaðsins í fyrradag, en bollaleggingar um það hófust með óvæntri ráðningu nýs ritstjóra blaðsins fyrir helgi.