Lilja skipar Pál og Magnús Geir í tvær af toppstöðum íslensks menningarlífs

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Magnús Geir Þórðarson í embætti þjóðleikhússtjóra. Skipanin gildir í fimm ár, frá og með 1. janúar 2020. Þá hefur hún ákveðið að skipa Pál Magnússon í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Skipað er í embættið til fimm ára frá og með 1. desember nk.

Páll hefur fjölþætta menntun og reynslu af stjórnunarstörfum hjá hinu opinbera. Hann lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaraprófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með BA-gráðu í guðfræði frá sama skóla. Frá árinu 2006 hefur hann starfað sem sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og bæjarritari hjá Kópavogsbæ, stýrt umbótum á stjórnsýslu bæjarins og m.a. haft forgöngu um innleiðingu gæðakerfis. Hann starfaði áður í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu um sjö ára skeið, sem aðstoðarmaður ráðherra. Páll sat í stjórn Landsvirkjunar frá árinu 2007 til 2011, þar af sem formaður frá 2007 til 2008, var varaformaður útvarpsráðs og síðar stjórnar RÚV ohf. frá 2003 til 2008. Hann var stjórnarformaður Fjárfestingastofu Íslands frá 1999 til 2006 og á sama tímabili varamaður í stjórn Norræna fjárfestingabankans (NIB). Á árunum 1990-1998 var hann varabæjarfulltrúi í Kópavogi og varaþingmaður Framsóknarflokksins frá 1999 til 2007.

Þrettán sóttu um embættið og mat hæfnisnefnd fjóra umsækjendur mjög hæfa til þess að gegna því. Í kjölfarið boðaði ráðherra þá í viðtal, þar sem ítarlega var farið ofan í einstaka þætti starfsins og sýn umsækjenda. Var það mat ráðherra, að Páll Magnússon væri hæfastur umsækjenda til að stýra ráðuneytinu næstu fimm árin og leiða það umbótastarf sem er í farvatninu. Það miðar að því að efla mennta- og menningarmálaráðuneytið, bæta verkferla og starfshætti svo meðferð mála verði eins skilvirk og frekast er unnt.

Aftur í leikhúsið

Magnús Geir stundaði leikstjórnarnám við Bristol Old Vic Theater School (1994) og lauk M.A. gráðu í leikhúsfræðum frá University of Wales (2003). Magnús Geir hefur jafnframt lokið MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík (2005). Hann hefur langa og víðtæka stjórnunarreynslu og áratuga reynslu af leikhússtörfum. Áður en hann tók við starfi útvarpsstjóra RÚV fyrir tæpum sex árum var hann leikhússtjóri Borgarleikhússins og þar áður var hann leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Jafnframt hefur Magnús Geir mikla leikstjórnarreynslu.

Sjö umsóknir bárust um embætti þjóðleikhússtjóra. Þjóðleikhúsráð veitti umsögn, í samræmi við ákvæði leiklistarlaga, og skipaði ráðherra í kjölfarið hæfnisnefnd til að meta hæfi umsækjenda nánar. Nefndin framkvæmdi mat á umsækjendum á grundvelli umsóknargagna og viðtala og skilaði niðurstöðu til ráðherra þar sem fjórir umsækjendur voru metnir hæfastir. Ráðherra boðaði þá í viðtal í kjölfarið þar sem áhersla var lögð á stjórnunar- og leiðtogahæfileika til viðbótar og stuðnings við það mat sem þegar hafði farið fram.