Miðflokkurinn: Heilbrigðisráðherra láti af „úreltri ráðstjórnarhugsun“

Nokkrir þingmanna Miðflokksins: Karl Gauti Hjaltason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birgir Þórarinsson, Bergþór Ólason og varaþingmaðurinn Jón Þór Þorvaldsson.

Þingflokkur Miðflokksins hvetur heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, til að bregðast nú þegar við þeim fjölmörgu vandamálum sem starfsfólk Landspítalans hefur bent á nýverið. Frá þessu segir í tilkynningu frá þingflokki Miðflokksins í dag.

„Þá skorar þingflokkurinn á ríkisstjórnina að láta framkvæma ítarlega stjórnsýsluúttekt á spítalanum, tryggja mönnun í samvinnu við fagstéttir, samþykkja tillögu Miðflokksins  um að setja stjórn yfir spítalann til stuðnings og aðhalds með framkvæmdastjórn ásamt því að grandskoða fjármál þessa mikilvægasta sjúkrahúss landsins. 

Þingflokkurinn hvetur einnig til þess að heilbrigðisstofnanir og sjúkrahús á landsbyggðinni fái aukin verkefni og létti þannig á Landspítala. Á Akranesi, Selfossi og í Reykjanesbæ svo eitthvað sé nefnt er aðstaða og starfsfólk sem er fullfært til að sinna mörgum af þeim verkefnum sem LSH sinnir í dag. 

Þá hvetur þingflokkurinn ráðherra til að láta af úreltri ráðstjórnarhugsun og semja nú þegar við einkaaðila um aðgerðir, umönnun, hjúkrun og annað sem stytt getur biðlista og bætt ástandið í heilbrigðiskerfinu. 

Til að bæta þjónustu og mönnun á landsbyggðinni er ríkisstjórnin hvött til að taka upp hvatakerfi að erlendri fyrirmynd þar sem sérfræðingum er ívilnað fyrir störf sín í dreifðari byggðum. 

Loks hvetur þingflokkurinn heilbrigðisráðherra til að beita sér fyrir að heilbrigðisstarfsfólk tjái sig um áhyggjur sínar og leggi með þeim hætti fram tillögur til lausnar á vandamálum sem við er að etja.“