Forsætisráðuneytinu hafa borist 16 umsóknir um embætti seðlabankastjóra sem auglýst var laust til umsóknar 20. febrúar sl. en frestur til umsóknar rann út á miðnætti 25. mars sl.
Athygli vakti að aðeins ein kona er á meðal umsækjenda og viðkomandi væri nemi, en svo kom leiðrétt tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem nafn Katrínar Ólafsdóttur hafði bæst við. Virðist umsókn hennar hafa orðið fyrir barðinu á vírusvörn póstkerfis Stjórnarráðsins.
Sérstök hæfnisnefnd verður skipuð til þess að fara yfir umsóknirnar og meta hæfni þeirra, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.
Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra:
- Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra og fv. aðstoðarseðlabankastjóri.
- Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands
- Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands
- Benedikt Jóhannesson, fyrrv. fjármála- og efnahagsráðherra
- Gunnar Haraldsson, hagfræðingur
- Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur og fv. formaður ASÍ
- Gylfi Magnússon, dósent og formaður bankaráðs Seðlabankans
- Hannes Jóhannsson, hagfræðingur
- Jón Daníelsson, prófessor
- Jón G. Jónsson, forstjóri bankasýslu ríkisins
- Katrín Ólafsdóttir lektor í Háskólanum í Reykjavík
- Salvör Sigríður Jónsdóttir, nemi
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
- Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðs-, viðskipta- og fjárstýringar í Seðlabanka Íslands
- Vilhjálmur Bjarnason, lektor og fv. alþingismaður
- Þorsteinn Þorgeirsson, sérstakur ráðgjafi á skrifstofu seðlabankastjóra